07.12.09



Sálin hefur leikið á nokkrum eftirminnilegum giggum á Nasa.
Hér eru nokkrar myndir úr þátíðinni:
(1) (2) (3) (4) (5) (6) (7) (8) (9) (10) (11) (12) (myndir Atli Már Hafsteinsson)

Jæja. Þá fara menn að dusta rykið af gíturunum, því fyrir dyrum standa nokkrir tónleikar.

Hafist verður handa á Nasa 12. desember.

Því næst liggur leiðin norður í land, hvar leikið verður í Sjallanum á Akureyri þann 19. desember.

Á milli jóla og nýárs troða Sálverjar upp á Selfossi, nánar tiltekið á 2. í jólum.

Á gamlaárskvöld verður talið í á Broadway.

Og á nýárskvöld verður Sálin á Spot í Kópavogi.

Jólarispunni lýkur síðan í Officeraklúbbnum á Keflavíkurflugvelli laugardagskvöldið 2. janúar. ATH. að Þeir tónleikar voru upphaflega fyrirhugaðir eftir miðnætti á jóladag, en í ljós kom að það fer í bága við landslög að kveikja á rafmagnsgíturum á þeim tíma.

Að lokinni jólarispu legst bandið á ný í dvala og hyggur að framtíðinni, sem er nokkurn veginn óráðin, líkt alltaf....


23.09.09
Slútt í Árbænum


Skyldi Liam Gallagher troða upp á lokaballi Manchester City þetta seasonið..?

Á laugardaginn lýkur formlega sumaryfirreið Sálarinnar og leggja liðsmenn að því loknu niður hljóðfærin í bili. Um helgina lýkur einnig knattspyrnuvertíðinni þetta árið og slá Fylksimenn af því tilefni upp árlegu lokaballi sínu í íþróttahúsi Árbæjar. Má gera ráð fyrir að Árbæingar streymi þangað en auðvitað eru allir velkomnir á þessa samkomu, sem jafnan hefur verið fjölsótt og fjörug. Aldurstakmark verður 18 ár.

Af Sálverjum er það annars helst að frétta, að forsöngvarinn hefur undanfarnar vikur unnið kappsamlega að sólóplötu sem stefnt er að komi út í nóvember. Nýlega stofnaði Guðmundur ásamt Richard Scobie, fyrrum frontmanni Rikshaw, dúettinn Scobie & Gummfunkel, og troða þeir upp hér og þar á næstunni. Og Jóhann kemur sem fyrr víða við með trommur sínar og málmgjallir, sem og Friðrik, sem leggur að venju hvarvetna gjörva hönd á plóg, en þess má geta að Friðrik lagði Stefáni til þrjá texta á sólóplötunni nýju. Þá skal þess getið að Jens hóf fyrr á þessu ári upptökur á annarri sólóplötu sinni, en óvíst er hvenær afraksturinn lítur dagsins ljós.

Gera má ráð fyrir að Sálin dúkki aftur upp á aðventunni, en þá eru fyrirhugaðir örfáir tónleikar. Verður það vitaskuld auglýst hér þegar þar að kemur.


15.09.09
Áfram Selfoss


Hér gefur að líta Ingólf Þórarinsson og bróður hans, Guðmund, sem báðir eru lykilmenn í liði Selfoss. Yngri bróðirinn þykir einnig efnilegur söngvari. Hér er sýnishorn.

Sálin leikur á Selfossi n.k. laugardagskvöld. Tilefnið er einna helst það, að knattspyrnulið bæjarins tryggði sér á dögunum sæti í efstu deild, í fyrsta skipti í sögu félagsins. Það verður því líkast til mikill glaumur á Selfossi þetta kvöld, en sama dag leika Selfyssingar lokaleik sinn í fyrstu deildinni gegn ÍA. Leikmenn og velunnarar halda síðan lokahóf í Hvíta húsinu um kvöldið, Sálin treður upp að því loknu og dyrnar verða opnar fyrir hverjum sem verða vill langt fram á nótt.

Ekki er ólíklegt að Veðurguðinn geðþekki, Ingólfur Þórarinsson, eða Ingó, taki sporið þetta kvöld, en hann hefur sem kunnugt er farið mikinn í sumar, bæði sem einn af vinsælustu söngvurum landsins og sem einn að burðarásum Selfossliðsins. Geri aðrir betur. Óska Sálverjar honum, öðrum leikmönnum liðsins, þjálfaranum Gunnlaugi Jónssyni sem og Selfyssingum öllum, hjartanlega til hamingju með tímamótin.

Það styttist í að Sálverjar dragi saman seglin og hvíli sig um skeið. Forsöngvarinn er að vinna að sólóplötu þessa dagana sem stefnt er að komi út í nóvember.


31.08.09
Kópavogur & V-eyjar um helgina


Sálin skemmti síðast í Eyjum á þjóðhátíðinni í ár. Þessi mynd er tekin utan úr sal. Eða öllu heldur innan úr Dal.
Fleiri myndir: (1) (2) (3) (4) (5) (myndir Sigurjón Ragnar)

Nú fer að hylla undir leikhlé hjá Sálverjum. Á föstudagskvöld verður blásið til sóknar í Kópavogi, nánar tiltekið á hinum nýja skemmtistað Spot í Bæjarlindinni. Það má segja að þetta sé n.k. heimavöllur fyrir forsöngvarann, því hann býr í næsta nágrenni og er ekki lengi að sveifla sér yfir á Blettinn – og heim aftur. Alkunnur er frasi doktors Gunnars Inga Birgissonar, "Það er gott að búa í Kópavogi". Enda búa 40% meðlima bandsins í bæjarfélaginu. En það er e.t.v. ekki á vitorði allra hversu gott það er að skemmta sér í Kópavogi. Það er því tilvalið fyrir höfuðborgarbúa að kynnast því að eigin raun á Spot n.k. föstudagskvöld. Verða þetta síðustu tónleikar Sálarinnar í bæjarfélaginu um alllanga hríð.

Á laugardaginn halda Sálverjar út fyrir landsteinana, nánar tiltekið til Vestmannaeyja. Verður þar um kvöldið slegið upp rokktjöldum og mögnurum í Höllinni, hinu myndarlega skemmtihúsi Eyjamanna.
     En laugardagurinn verður einnig merkur fyrir þá staðreynd, að þann dag mun Eyja-pæjan Laufey Jörgensdóttir, ein af dyggustu áhangendum Sálarinnar í gegnum tíðina, ganga í það heilaga með unnusta sínum, Jónasi Þór Friðrikssyni. Laufey hefur fylgst með Sálinni frá fyrstu tíð og fylgt henni á ófá giggin, en m.a. má sjá hana hér munda myndavél sína í Njálsbúð árið 1992. Og það er saga á bakvið þessa mynd: Laufey og liðsfélagar hennar í Tý fóru þessa helgi í keppnisferð til Þorlákshafnar og ekki var annað vitað en að íþróttafólkið unga væri þar innan reglugirðingar í rólegheitum. En eftir helgina birtist öllum að óvörum þessi mynd flennistór á forsíðu DV. Kom þá á daginn að þjálfararnir höfðu látið undan þrýsitingi stúlknanna og hleypt þeim á ballið. Fengu þeir vitaskuld svarta skömm í hattinn frá oddvitum Týs þegar þetta uppgötvaðist. – Sálverjar óska brúðhjónunum tilvonandi innilega til hamingju fyrirfram.
     Það er ástæða til að benda Sálarþyrstum Eyjapeyjum og meyjum á að bandið verður ekki á ferðinni í Vestmannaeyjum næstu mánuðina a.m.k. og því um að gera að grípa tækifærið og bregða undir sig betri fætinum á laugardagskvöldið.

25.08.09
Sálin á Selfossi


Næstkomandi laugardagskvöld troða Sálverjar upp á hinum prýðilega skemmtistað 800 Bar á Selfossi, en nafn staðarins skírskotar til póstnúmers Selfyssinga.

Staðurinn, sem opnaði fyrir rúmlega ári, varð orðinn landsþekktur áður en hann opnaði, þar eð myndskeið þaðan gekk um netið í kjölfar jarðskjálftans mikla á Suðurlandi í maí 2008. Myndbandið sýndi kæliskápa staðarins tæmast á örskotsstundu þegar skjálftinn reið yfir, en staðarhaldarar höfðu nóttina áður fyllt kælana og gert klárt fyrir opnun. Fór þar allmikill mjöður fyrir lítið og vísast hafa nagdýr í holræsakerfi bæjarins verið með timburmenn daginn eftir.

En Árni og hans fólk var ekki lengi að fylla á kælana aftur og opnaði staðurinn með bravör skömmu síðar og hefur gengið við góðan orðstír upp frá því. Og þar verður vitaskuld allt opið uppá gátt á laugardagskvöldið og glaumur góður ef að líkum lætur.

Forsala miða verður á staðnum frá kl. 22-01 á fimmtudagskvöldið.

18.08.09
NASA á menningarnótt


Mynd: Siv Friðleifsdóttir

Mynd: Daníel Rúnar

Mynd: Daníel Rúnar
Nokkrar myndir teknar á Nasa á umliðnum misserum
(smella = stækka).

Á menningarnótt Reykjavíkur treður Sálin upp í hjarta höfuðborgarinnar, í gamla Sjálfstæðishúsinu, einnig þekkt sem gamla Sigtún og hin seinni ár sem Nasa – í höfuðið á Geimferðastofnun Bandaríkjanna, sem starfar sem kunnugt er að rannsóknum í geimnum. En það, að skíra skemmtistað í miðri Reykjavík þessu nafni, gæti einhverjum þótt rannsóknarefni út af fyrir sig.

Annars er nánast sama hversu nöfn kunna að hljóma furðulega í öndverðu, það má ýmsu venjast með tímanum. T.d. þótti mörgum "Sálin hans Jóns míns" í meira lagi furðulegt hljómsveitarnafn á sínum tíma. En það vandist smám saman og bandið sömuleiðis. –Og auðvitað eru allir löngu búnir að venjast "Nasa".

Það er hins vegar kunnara en frá þurfi að segja, að Sálargigg á Nasa hafa jafnan verið fjörlegar samkomur og líklegt að lítil breyting verði á því um helgina. Heyrst hefur að staðarhaldarinn trausti, Inga "á Nasa", ætli sér að troðfylla á sprengjulagerinn og hafa "confetti"-byssurnar fullhlaðnar um helgina og standa fyrir litlu minna sjónarspili en verður á ytri höfninni um miðnæturbil þegar flugeldar fara þar á loft og langleiðina út í geim til móts við för Geimferðastofnunarinnar.

Sálinni til fulltingis á menningarnótt verða hinir mögnuðu lúðraþeytarar Samúel Samúelsson og Kjartan Hákonarson úr Jagúar. Það verður því þétt skipað á sviðinu og þéttleiki bandsins verður í sögulegu hámarki.

Þetta verður síðasta formlega gigg Sálarinnar í Reykjavík um alllanga hríð, því bandið dregur sig í hlé í septemberlok. Það eru því síðustu forvöð fyrir Sálarááhugamenn og meyjar að hafa Sálfarir – lokatækifæri í bili er bókstaflega Nasa á laugardaginn.

Forsala veršur į Nasa į föstudeginum milli kl. 13 og 17. Mišaverš ķ forsölu er 2.000 en viš huršina 2.500.

10.08.09
Akranes á laugardaginn


Þessa skemmtilegu mynd af Skagamönnum í fótbolta gerði Sigurþór Jakobsson (smella = stækka). Fleiri myndir eftir Sigurð er að finna hér.

Sálin leikur á Breiðinni Akranesi á laugardaginn kemur. Verður þetta síðasta giggið þar um slóðir í langan tíma, því í septemberlok fara Sálverjar í frí og munu liggja í láginni um alllangt skeið.

Sú var tíðin að Sálin lék tíðum á Akranesi á þessum sama stað, sem áður var þekktur undir nafninu Hótel Akranes eða Hótelið. Í árdaga sveitarinnar, vorið 1988, tróð bandið þar upp nokkrum sinnum í mánuði og var því hálfgert húsband þar um skeið. Á fyrstu Sálarplötunni, Syngjandi sveittir, er að finna efni sem hljóðritað var á Akranesi á þessum tíma.

Þá réð ríkjum á Hótelinu vertinn Jakob, en sá var eftirminnilegur karakter sem lét sér fátt fyrir brjósti brenna. Áttu Sálverjar einatt við hann góð samskipti, enda var Jakob þolinmóður gagnvart tiktúrum og sérþörfum hljómsveitarmanna almennt. Aðeins einu sinni kom það fyrir að Jakobi sinnaðist við bandið og virtist hér um bil misboðið, en það var þegar Sálverjar mættu allt, allt of seint til spilamennsku haustið 1992. Þá hafði bandið tafist á afmælistónleikum Vífilfells í borginni og gert misheppnaða tilraun til þess að komast upp á Skaga með þyrlu. Þessi óstundvísi hafði það m.a. í för með sér að Jakob missti húsleyfið tímabundið og var hann skiljanlega nokkuð óhress með það.

Sálverjum finnst einatt sem andi Jakobs svífi yfir vötnum þegar þeir koma á Breiðina, sem ber vitaskuld nokkurn keim af gamla Hótelinu þótt töluverðar breytingar hafi verið gerðar frá því að Sálin var þar "húsband".


30.07.09
Réttu mér hjálparhönd

Sálin var að senda frá sér enn eitt glænýtt lag, hið seinna af tveimur er kemur frá sveitinni þetta sumarið. Ópusinn heitir "Réttu mér hjálparhönd" og eru höfundar lags og texta þeir Guðmundur og Friðrik. Lagið verður fáanlegt á nýju safnplötunni Pottþétt 50 og auðvitað einnig til niðurhals á Tónlist.is

Sveitin hefur verið í nokkuð stífu tónleikahaldi síðastliðið eina og hálfa árið og verður að eitthvað fram á haust, em þá tekur við frí um óákveðinn tíma. Um verslunarmannahelgina verður Sálin hans Jóns míns á faraldsfæti eins og oft áður, fyrst á Þjóðhátíð Vestmannaeyjum á laugardagskvöldið og síðan í Sjallanum á Akureyri á sunnudagskvöldið, en það er liður í hátíðinni "Einni með öllu".


12.07.09
Njálsbúð laugard. 18. júlí


Úr Njálsbúð sumarið 1992 (smella = stækka)

Laugardagskvöldið 18. júlí blæs Sálin til sóknar á gamalkunnum slóðum, í Landeyjunum, nánar tiltekið í hinu fornfræga félagsheimli Njálsbúð, sem á sínum tíma var eitt helsta vígi hinnar svo kölluðu sveitaballamenningar. Meiningin er að að rifja þar upp stemmninguna sem fylgdi þessum skemmtunum og ýmsir hafa saknað nokkuð hin seinni ár, en segja má að sveitaböllin hafi nánast lagst af eftir að knæpur hófu að spretta upp í hverju bæjarfélagi.

Nú eru liðin hartnær 15 ár frá því að Sálin tróð síðast upp í Njálsbúð, en sveitin lék þar reglulega á sínum tíma, enda voru félagsheimilin þá aðaltónleikavetvangur hljómsveita. Eiga margir góðar minningar frá þeim tíma og er það von Sálverja að fyrrum Njálsbúðar-áhangendur sveitarinnar sjái sér leik á borði og fjölmenni á laugardaginn. En einnig og ekki síður þeir sem yngri eru og ekki hafa haft tækifæri til að upplifa ekta sveitaball, en eitt af einkennum sveitaballanna var einmitt að þar var aldursbilið jafnan breitt og algengt að þar skemmtu sér jafnvel saman nokkrar kynslóðir.

Sú var tíðin að fólk sló upp tjöldum í námunda við félagsheimili á sumrin og lét sig ekki muna um að gista þar og flétta þannig saman sveitaballi og stuttri útilegu. Má í því sambandi geta þess að í námunda við Njálsbúð eru prýðileg tjaldstæði.

Líkt og áður tíðkaðist, þá verða farnar sætaferðir frá helstu stöðum á Suðurlandi. Bílar frá Guðmundi Tyrfings fara frá Þorlákshöfn, Eyrarbakka, Stokkseyri, Selfossi, Hellu og Hvolsvelli. Byrjað verður í Þorlákshöfn kl. 23.

Á dögunum sendi Sálin frá sér nýtt lag, sem ber heitið "Kominn tími til". Sá titill á ágætlega við að þessu sinni, því það er sannarlega kominn tími til að Sálin stigi aftur á svið í Njálsbúð.

01.07.09
"Lopapeysan 2009"


24.06.09
Sįlin ķ Žorlįkshöfn laugardagskvöld

Sálin hans Jóns míns treður upp í Versölum Þorlákshöfn á laugardaginn kemur. Í fyrrasumar lék Sálin þar í fyrsta skipti í sögu sveitarinnar og lukkaðist það svo vel að ákveðið var að alls ekki myndu líða önnur 20 ár í næstu tónleika þar um slóðir. Sálverjar sendu nýverið frá sér nýtt lag sem ber heitið "Kominn tími til" og fullvíst er að það muni hljóma á laugardaginn í bland við þeirra helstu smelli.

Eins og venja er þegar mikið stendur til, þá verða Versalir á laugardaginn sameinaðir Ráðhúskaffi, þannig að sem best pláss verði fyrir þá sem vilja hreyfa sig. Aldurstakmark verður 18 ár, en húsið opnar kl. 23. Fyrir þá sem vilja hafa vaðið fyrir neðan sig og sleppa við biðröð verður boðið uppá forsölu á Ráðhúskaffi á föstudeginum kl. 18-20.

Þess má geta að Sálin leikur í hinu fornfræga félagsheimili Njálsbúð, laugardaginn 18. júlí. Þar verður gamla sveitaballastemmningin rifjuð upp. Sú var tíðin að Sálin var þar tíður gestur og vafalítið eiga margir Sunnlendingar góðar minningar frá þeim tíma.



11.06.09
Nýtt lag: Kominn tími til

Glænýtt Sálarlag er nú farið að heyrast á ljósvakans öldum. Lagið heitir "Kominn tími til" og hér er hægt að kynna sér það lítillega og kaupa. Er lagið annað tveggja nýrra sem sveitin sendir frá sér í sumar, einkum í þeim tilgangi að bjóða uppá nýtt efni á tónleikaför næstu vikna. Sálverjar munu hafa hljóðfærin á lofti fram á haust, en þá verður þeim pakkað niður um óákveðinn tíma.
     Gítareigandinn góðkunni, Guðmundur Jónsson, brá sér í viðtal á Bylgjunni af þessu tilefni og tjáði sig um lagið og sitthvað fleira. Hérna má hlýða á viðtalið.


29.05.09
Tónleikar á næstunni

Sálin verður nokkuð á ferðinni í sumar. Helstu viðkomustaðir á næstu vikum verða sem hér segir. Það má vera að nokkrir viðkomustaðir bætist við og verður listinn þá uppfærður ef til þess kemur.

     13. júní: Hvíta húsið, Selfossi
     19. júní: Spot, Kópavogi
     20. júní: Sjallinn, Akureyri
     27. júní: Versalir, Þorlákshöfn
     04. júlí: Akranes ("Lopapeysan 2009")
     11. júlí: Valaskjálf, Egilsstöðum
     18. júlí: Njálsbúð, Landeyjum
     01. ágúst: Þjóðhátíð, Vestmannaeyjum
     02. ágúst: Sjallinn, Akureyri
     08. ágúst: Officeraklúbburinn, Keflavík
     15. ágúst: Breiðin, Akranesi
     22. ágúst: Nasa, Reykjavík

11.05.09
Vorgleði í Mosfellsbæ laugard. 23. maí

Sálin stendur fyrir vorgleði í Mosfellsbæ laugardagskvöldið 23. maí. Sveitin hefur nokkrum sinnum haldið fjörug vor-gigg í sveitarfélaginu og þá jafnan í hinu ágæta félagsheimili, Hlégarði. Hafa þessar skemmtanir verði fjölsóttar, svo mjög reyndar, að húsið réði á stundum illa við. Þótti kominn tími til að auka aðeins olnbogarýmið og var brugðið á það ráð að slá næstu vorgleði upp í íþróttahúsinu Varmá, í góðri samvinnu við íþróttafélagið Aftureldingu, sem nýverið fagnaði 100 ára afmæli. Það er von aðstandenda að Mosfellsbæingar fjölmenni og geri sér glaðan dag, um leið og þeir fagna vorkomunni. Og að sjálfsögðu eru aðkomumenn velkomnir, háir jafnt sem lágir.

Forsala miða verður sem hér segir:
     Á Markaði Aftureldingar (við hlið Krónunnar):
     Föstud. 15. maí kl. 16:00-18:00
     Laugard. 16. maí kl. 13:00-18:00
     Sunnud. 17. maí kl. 13:00-18:00
     Einnig í íþróttahúsinu frá kl. 21 þann 23. maí

22.04.09
Aukakosningar á Nasa 25. apríl

Sálin boðar til aukakosninga á Nasa laugardagskvöldið 25. apríl. Eftir að fólk hefur kosið til alþingis og kjörstöðum lokar getur það undir sér niður á geimferðastofnun og kosið með fótunum langt fram á nótt. Þar mun framboðslisti Sálarinnar liggja fyrir samþykktur af miðstjórn FÍH og FTT.

Listann skipa:
1. sæti: Jens Eggerz Hansson (Snúru- og textamálaráðherra)
2. sæti: Jóhann Thors Hjörleifsson (Þunguhöggamálaráðherra)
3. sæti: Guðmundur Thorberg Jónsson (Ráðherra vítisvéla)
4. sæti: Stefán Havsteen Hilmarsson (Söng- og poppstjörnumálaráðherra)
5. sæti: Hriflu-Friðrik Sturluson (Groovemálaráðherra)

Forsala miða verður á staðnum föstudaginn 24. apríl kl. 13-17. Aldurstakmark 20 ár.

03.03.09
Tónleikar á næstunni


Bandið hefur legið í hýði frá áramótum. En nú fara Sálverjar senn að láta á sér kræla aftur og mun sveitin verða nokkuð aktíf fram á haust, en þá er meiningin að rifa seglin. Nokkrir tónleikar eru fyrirhugaðir fram að vori og má fylgjast með gangi mála hér á síðunni. Á næstu vikum verður leikið á eftirfarandi stöðum:

Lau. 7. mars: Nasa, Reykjavík
Föst. 3. apríl: Players, Kópavogi
Lau. 11. apríl: Sjallinn, Akureyri
Sun. 12. apríl: Officeraklúbburinn, Keflavík
Mán. 13. apríl: 800 bar, Selfossi

Lau. 18. apríl: Breiðin, Akranesi
Lau. 25. apríl: Nasa Rvk.
Föst. 1. maí: Sauðárkrókur
Lau. 2. maí: Laugardalshöll (minningartónl. um Rúnar Júl)
Lau. 9. maí: Players, Kópavogi

Sálin verður ekki alveg einhöm á næstunni, ef svo má segja. Laugardaginn 7. mars hitar U2 upp fyrir Sálina á Nasa. Eða þannig. Vegna útkomu nýrrar breiðskífu U2 blæs hópur áhangenda sveitarinnar til tónleika á Nasa áður en Sálin stígur á svið þetta kvöld. Hér fyrir neðan fer fréttatilkynning frá þeim sem fyrir þeim tónleikum standa – áhugasömum til glöggvunar.

Föstudaginn 3. apríl verður Sálin á Players í Kópavogi, en þar mun einnig troða upp stelpubandið Elektra, sem vakti óskipta athygli í undankeppni Eurovision á dögunum. Langt er síðan í landinu hefur starfað kraftmikið stelpuband og verður spennandi að fylgjast með framgangi þeirra á næstunni. Elektra mun troða upp í leikhléi hjá Sálinni þetta kvöld.

U2 Project kynnir í samstarfi við U2 til Íslands - Fögnuð vegna útkomu nýjustu breiðskífu U2, No Line On The Horizon og tónleika til styrktar baráttu U2 til Íslands að fá goðin til tónleikahalds á Íslandi.

Tónleikarnir fara fram á Nasa laugardaginn 7. mars milli 21 og 23 á undan dansleik Sálarinnar. Húsið opnar 20:00 og forsala verður á Nasa föstudaginn 6. mars milli 13 og 17. Ekkert verður til sparað og tónlist þessara miklu snillinga verður sýnd fyllsta virðing og lotning. Hluti miðaverðs rennur í félagssjóð U2 til Íslands og nýtist til stuðning þess mæta málefnis að fá goðin til tónleikahald á Íslandi.

Skipuleggjendur vænta framúrskarandi kvöldstundar með hljóðrænum hápunktum í lögum svo sem Pride, Where The Streets Have No Name, Sunday Bloody Sunday, One, Stay (far away) og With Or Without You svo fáein séu nefnd.

Hljómsveitina skipa: Birgir Nielsen (Land og synir, Klaufarnir, VV&B), Friðrik Sturluson (Sálin hans Jóns míns), Gunnar Þór Eggertsson (Land og synir, VV&B) og Rúnar Örn Friðriksson (Sixties). Gestasöngvarar kynntir síðar.

Miðaverð 1.500 ISK

16.12.08
JólaSálin kemur

Sálin slær upp nokkrum giggum sitt hvoru
megin við aðfangadag. Föstudagskvöldið 19. des. verður bandið á Players í Kópavogi og flýgur svo norður yfir heiðar daginn eftir og verður í Sjallanum laugardagskvöld ? með viðkomu í Hagkaupum á Akureyri, hvar Sálverjar munu árita verk sitt "Hér er draumurinn" á milli kl. 17 og 18.

Á milli jóla og nýárs leikur bandið annars vegar á 800 Bar á Selfossi (annan í jólum) og hins vegar í Officera-klúbbnum á Keflavíkurflugvelli (laugaragkvöldið 27. des.). Síðast liðið sumar tróð Sálin upp á þessum stöðum við afar góðar undirtektir. Og með fullri virðingu fyrir hinum frábæru Selfyssingum þá er óhætt að segja að giggið í "Offanum" hafi verið sérlega eftirminnilegt, enda í fyrsta skiptið sem Sálin treður upp á "Vellinum".

Giggin á milli jóla og nýárs verða tileinkuð minningu Rúnars Júlíussonar, en svo vill til að forsöngvari Sálarinnar hlaut eldskírn sína í hljóðveri á Skólaveginum hjá Rúnari haustið 1986, hvar Sniglabandið tók upp sína fyrstu skífu. Sálverjar ætla að heiðra minningu Rúnars með því að flytja nokkur lög sem hann hljóðritaði á sínum ferli. Hin síðari ár er mjög sjaldgæft að Sálverjar flytji tökulög og er meiningin m.a. að flytja lagið "Vilji Sveins" eftir Rúnar, en það lag flutti Sálin annað slagið á þeim tíma er lagasafn bandsins var ekki orðið jafn stórt og nú er. Þess fyrir utan leika Sálverjar öll sín helstu lög, en þversnið þekktustu laga bandsins frá upphafi kom nýlega út á safnplötunni "Hér er draumurinn", sem hlotið hefur prýðilegar móttökur.

Ólíklegt er að Sálin troði aftur upp á Selfossi eða á Suðurnesjum alveg á næstu misserum og því ættu Sálar- og dansþyrstir ekki að láta þessi gigg fram hjá sér fara.



03.12.08
Sönghefti með helstu Sálarlögum

Út er komið nótna- og sönghefti með öllum þekktustu lögum Sálarinnar hans Jóns míns. Heftið ber nafnið ?Hér er draumurinn?, eða sama nafn og viðamikil útgáfa sveitarinnar sem nýlega kom út. Heftið inniheldur líkt og plöturnar 45 lög sem mega heita þverskurður af útgefnu efni Sálarinnar frá upphafi. Lögin eru sett upp á aðgengilegan máta, með nótum, laglínu, hljómum og söngtexta þannig að sem flestir ættu að geta spreytt sig á því að flytja þau, hvort heldur sem er á tónleikum, við skírnir, í brúðkaupum, afmælum, jarðarförum, útilegum eða hver með sínu nefi í heimahúsum.

Það er von Sálverja að heftið komi að góðum notum, en segja má að vart hafi liðið sá mánuður hin síðari ár að ekki hafi verið leitað til bandsins eftir nótum eða hljómum við hin ýmsu lög sveitarinnar. Heftið fæst í öllum hljóðfæraverslunum sem og í verslunum Skífunnar.



21.11.08
"Hér er draumurinn" komin út

Sálin hans Jóns míns hefur sent frá sér veglegan útgáfupakka. Útgáfan heitir "Hér er draumurinn" og er einhver veiga- og íburðarmesta hljóð- og mynddiskaútgáfa sem staðið hefur fyrir hérlendis. Í raun er um þrjár útgáfur að ræða;

Í fyrsta lagi þriggja hljóðdiska útgáfu sem inniheldur 45 þekktustu lög sveitarinnar auk 92 síðna myndskreyttrar bókar um sögu bandsins.

Í öðru lagi er um að ræða tveggja mynddiska útgáfu (DVD) þar sem annar diskurinn geymir 90 mínútna heimildamynd um Sálina, en hinn diskurinn öll myndbönd sveitarinnar.

Í þriðja lagi er það sjö diska viðhafnarútgáfu í takmörkuðu upplagi; fjórir hljóðdiskar og þrír mynddiskar (DVD). Sú útgáfa skiptist þannig: Fyrsti mynddiskurinn af þremur geymir lengri útgáfu heimildamyndarinnar (150 mínútur). Annar mynddiskurinn inniheldur valdar tónleikaupptökur frá ýmsum tímum og sá þriðji öll myndböndin. Fyrsti hljóðdiskurinn af fjórum geymir valdar tónleikaupptökur (aðrar en þær sem koma fyrir á mynddisknum). Hinir hljóðdiskarnir þrír geyma samtals 45 þekktustu lögin. Á meðal þeirra verða að sjálfsgöfðu nýjustu lögin þrjú sem út komu í sumar og haust, lögin "Gott að vera til", "Það amar ekkert að (ég get svo svarið það)" og "Það er satt". Viðhafnarútgáfunni og þreföldu hljóðdiskaútgáfunni fylgir síðan 92 blaðsíðna bók, fagurlega skreytt myndum og fróðleik um sögu sveitarinnar frá upphafi til dagsins í dag.

Sérstakt "Sálarblað" fylgdi Fréttablaðinu á útgáfudegi. Þar er rætt við fyrrum meðlimi Sálarinnar, sem og nokkra þjóðþekkta aðila um Sálina, einnig sem saga sveitarinnar er rakin í stórum dráttum. Hægt er að krækja sér í Sálarblaðið hér.

Útgáfugleði á Nasa 29. nóvember

Í tilefni útgáfu "Hér er draumurinn" blæs Sálin til útgáfugleði og í herlúðra á Nasa 29. nóvember og leikur þar öll sín helstu lög með miklum viðbúnaði. Til fulltingis sveitinni verða blásarar góðkunnu, Samúel og Kjartan, sem munu að vanda blása hver í kapp við annan, sem og í kapp við okkar eigin eilífa blásara, Jens H. Hansson. Plötusnúðurinn "Bjartar vonir" verður í húsinu og sviðið verður fagurlega skreytt. Þetta verða hinstu tónleikar bandsins í Reykjavík á þessu almanaksári.

17.10.08
Nýtt lag frumflutt í útvarpi

Föstudaginn 17. október verður frumflutt á útvarpsstöðvum nýtt lag með Sálinni hans Jóns míns. Lagið ber heitið "Það er satt" og er eftir Guðmund og Friðrik. Textinn fjallar öðrum þræði um yfirkeyrsluna og þann þykjustu- og blekkingarleik sem einkennt hefur þjóðfélagið um of undanfarin misseri, en eins og öllum er kunnugt endaði sú keyrsla úti í skurði með hrikalegum afleiðingum fyrir skemmstu.

Tölvugert myndband við lagið hefur verið gert og má skoða það hér, ásamt því auðvitað að hlýða á lagið.

07.10.08
Top Of The Rock laugardagskvöldið 11.10.08

Sálin hans Jóns míns treður upp á Vellinum á laugardaginn. Slegið verður upp græjum og tilheyrandi tólum í hinum nafntogaða klúbbi Top Of The Rock á Miðnesheiði. Þar rokkuðu feitu Kanarnir feitt fyrrum, en þetta húsnæði hefur lítt verið notað í seinni tíð. Ætla Sálverjar að leika öll sín helstu lög, gömul jafnt sem ný. Svo vill til að á laugardaginn á gítarleikarinn Guðmundur Jónsson afmæli og má gera ráð fyrir að hann sýni mikla tilburði af því tilefni. Mun hann m.a. leitast eftir því að kveða kreppuna tímabundið í kútin með gítarslætti, en vísindamenn við háskólann í Turku hafa bent á að tónlist sé eitt besta kreppumeðal sem völ er á.

Forsala miða fer fram í Gallerí Keflavík. Húsið opnar svo kl. 23 á laugardagskvöld. Heimamaðurinn DJ Atli sér um að hita upp og kæla niður gengið eftir því sem við á. Tæknistjóri verður magisterinn Sveinn Grétarsson og ljósameistari Kjartan Orri Fanndal, cand oceon. Að leik loknum verður gegn vægu gjaldi hægt að fá sætaferð til Kefla- og Njarðvíkur, nokkuð sem fótþreyttir tónleikagestir kunna líkast til vel að meta.

- - - - - - - - - -

Sálin sendir í næsta mánuði frá sér veglegan útgáfupakka sem geymir öll helstu lög sveitarinnar og gott betur. Útgáfan heitir "Hér er draumurinn" og verður einhver íburðarmesta hljóð- og mynddiskaútgáfa sem staðið hefur fyrir hérlendis. Hún mun innihalda 45 þekktustu lög sveitarinnar, auk tónleikaupptakna, heimildamyndar, tónlistarmyndbanda, fjölda ljósmynda og fróðleiks um Sálina, sem í ár fagnar 20 ára starfsafmæli sínu. Á næstunni fer glænýtt lag í útvarpsspilun, lagið "Það er satt", eftir Guðmund og Friðrik Sturluson. Það lag verður að sjálfsögðu að finna á "Hér er draumurinn", líkt og lögin "Gott að vera til" og "Það amar ekkert að (ég get svo svarið það)", sem hljómað hafa mikið í viðtækjunum í sumar.



18.08.08
Nýr meirihluti á Nasa á menningarnótt?

Að sögn Ingibjargar Örlygsdóttur, miðborgarfulltrúa Sálarinnar, eru taldar góðar líkur á að nýr meirihluti verði myndaður í hjarta Reykjavíkur á Menningarnótt, nánar tiltekið á skemmtistaðnum Nasa. Oddviti Sálarinnar í Orðu- og medalíunefnd, Stefán Hilmarsson, er á leið utan til náms í orgarfræðum og því ljóst að núverandi meirihluti er í uppnámi. Sér í lagi er málið viðkvæmt eftir að Friðrik Sturluson sagði sig úr W-listanum í kjölfar orðaskaks við stjórnarformann GREI á Marsibölstofunni aðfararnótt s.l. þriðjudags. Jens Hansson, höfundur Njálu, er líklegur til að taka sæti formannsins, enda lítt við hæfi að háttsettir embættismenn sitji að skálum opinberlega í miðri viku. Jóhann Hjörleifsson þykir vís til að styðja nýja meirihlutann, enda honum hagfellt þar sem foreldrar Jóhanns reka gifsgerð og eygir Jóhann möguleika á að fjölskyldufirmað fái bitlinga í formi þess að smíða styttur af nýjum borgarstjóra, sem og þeim fjölmörgu sem enn bíða þess að komast í styttuform. Guðmundur Jónsson, formaður Borgaróráðs og víðþekktur skottu- og spunalæknir, er talinn arkítekt hins nýja meirihluta og hefur hann að þessu tilefni tekið að sér að endurhljóðblanda gamalt lag Stjórnarinnar, "Til í allt (með eða án Villa)".

Það verður því spenna í lofti þegar Sálverjar stíga á svið á Nasa á laugardagskvöld. Nasa-gigg Sálarinnar eru þekkt fyrir læti, hita og svita og víst er að menningu og ómenningu ýmiskonar verður miðlað þar fram á rauða nátt. Boðið verður uppá óvæntar uppákomur í bland við sprengjur og confetti, sem einatt setja svip á skemmtanir í þessu gamla og góða samkomuhúsi. Nýja Sálarlagið, "Það amar ekkert að (ég get svo svarið það)", verður flutt í fyrsta skipti innan borgarmarkanna. Það verður vitaskuld tileinkað fráfarandi borgarstjórn, en landsstjórnin fær afganginn af kveðjunni, ef einhver verður. Eins munu Sálverjar dusta rykið af nokkrum eldri lögum sem ekki hafa hljómað á tónleikum undanfarinna mánuða.

Þeim sem vilja forðast raðir og hangs er bent á að forsala verður á Nasa á föstudaginn milli kl. 13 og 17.

- - - - - - - - - -

13.08.08
Spánnýtt Sálarlag

Hljómsveitin Sálin hans Jóns míns sendir á fimmtudaginn frá sér glænýtt lag sem ber hið langa nafn "Það amar ekkert að (ég get svo svarið það)". Líklegt má þó telja að það muni verða þekkt undir styttra heiti, ekki ósvipað og hljómsveitin sjálf, sem jafnan er kölluð Sálin manna í millum. Lagið er númer tvö í röð þriggja nýrra laga sem verður að finna á þrefaldri safnplötu vinsælustu laga sveitarinnar sem kemur út í haust í tilefni 20 ára afmælisins. Hið fyrsta, "Gott að vera til", hefur hljómað mikið í útvarpi það sem af er sumri, enda er sumarsólin þar ákölluð. Það lag afrekaði það að sitja í þrjár vikur á toppi lista vinsælustu laga landsins.

Texti nýja lagsins fjallar um ást í meinum og þá afneitun sem hún getur haft í för með sér. Fjölmargir ættu að geta tengt við þá tilfinningu með einum eða öðrum hætti, því margur hefur lent í ástarsorg og ófáir hafa lifað í afneitun til lengri eða skemmri tíma - ef ekki vegna ástar, þá af ýmsum öðrum sökum. Lagið er þó fráleitt deprímeruð tónsmíð og þeir sem kæra sig kollótta um lagatexta þurfa ekki að hafa nokkrar áhyggjur af því að lagið dragi þá niður. Þvert á móti er líklegt að mörgum finnist þessi ópus hressilegur, ef eitthvað er.



Síða "Gullna liðsins": www.salin.is.

Sendið póst eða fyrirspurn á: sh(hjá)mmedia.is